Salami pylsur frá Tariello ehf eru unnar úr 100% íslensku kjöti, aukaefni eru lítil og jafnvel engin. Hvoru tveggja gerir salami pylsurnar einstakar á íslenskum markaði. Við framleiðsluna er notast við þurrverkun og náttúrulega gerjun og tekur framleiðsluferlið allt frá tveimur upp í fjóra mánuði.
Það eru til mun fljótvirkari aðferðir til að verka salami og ógrynni af aukaefnum til að hraða ferlinu en við kjósum frekar að fara lengri leiðina sem krefst meiri þolinmæði en gefur mun betri gæði og bragð.
Aldagömul suðræn matarhefð unnin samkvæmt nútímatækni með ítalskri ástríðu og íslensku gæðahráefni skilar sér í einstökum bragðgæðum.
Þess má geta að Tariello vann til gullverðlauna fyrir Rauðvínssalami á Matarhátíðinni á Hvanneyri árið 2019 þar sem keppt var um íslandsmeistaratitillin í matarhandverki.
Þegar notast er við þurrverkun skiptir rétt tegund myglu höfuðmáli en myglan sér til þess að mynda vörn gegn óvinveittum bakteríum og óæskilegum tegundum af myglu. Að notast við myglu í matargerð er aldagömul aðferð við osta- og pylsugerð. Það tekur um 2-3 daga fyrir myglu að byrja að myndast á yfirborði pylsunnar. Mygla er lykilatriði við þurrverkun en hún t.d. hjálpar til við að halda réttu rakastigi þannig að þurrktíminn haldist jafn og langur sem síðan gefur mun betra og dýpra bragð.
Það eru til mun fljótvirkari aðferðir til að verka salami og ógrynni af aukaefnum til að hraða ferlinu en við kjósum frekar að fara lengri leiðina sem útheimtir meiri þolinmæði en gefur að okkar mati mun betri gæði og bragð.
Þess má geta að Tariello vann til gullverðlauna fyrir Rauðvínssalami-Tommasi, á Matarhátíðinni á Hvanneyri árið 2019 þar sem keppt var um íslandsmeistaratitilinn í matarhandverki.
Við erum alltaf hér
Meðlimir