15 Sep Trofie al Pesto
400gr. Trofie
100gr. Pesto
150gr. Kartöflur
Ólífuolía eða smjör
Salt og pipar að vild
Parmesan-Grana eða Pecorino
- Kartöflurnar skrældar og skornar í teninga, þær síðan soðnar með Trofie í ca 20 mín.
- Smakkið pastað til; ef það er enn hart í miðjunni, slökkvið á hellunni og látið liggja 2-3 mín ívatninu með lokið á pottinum.
- Blandið saman í stóra skál pestó og smá ólífuolíu eða smjöri.
- Hrærið svo pastanu og kartöflunum saman við pestóblönduna.
- Berið fram með rifnum osti.
Buon appetito!
No Comments