Villt og alið
Þingskálar 4
850 Hella
-
Guanciale
Guanciale er þurrverkuð kjötvara framleidd úr svínakinn, kryddað með ólíkum kryddjurtum, anís og einiberjum. Það hentar einkar vel til steikingar enda mjög hitaþolið. Þegar guanciale er steikt verður fitan stökk og gefur mikið og gott kryddbragð. Guanciale er meðal annars frábært sem grunnhráefni í hefðbundna ítalska rétti á borð við Carbonara og Amatriciana. -
Napoli
Napóli salami á uppruna sinn í Kampaníu-héraðinu á suður Ítalíu. Þessi tegund var áður framleidd á hverju heimili og var svo vinsæl að hún varð að þeirri dæmigerðu salami sem flestir þekkja. Salami Napóli þykir meðal-krydduð og sérlega bragðgóð. Hún er framleidd úr sérvöldu hráefni og fitu, krydduð með salti, pipar, hvítlauk og kryddjurtum. Þessi tegund salami hentar vel á sérhvert matar-og veisluborð, á samlokur, og á ostabakka, við nær öll tækifæri og fyrir allan aldur.
-
Piccante
Piccante salami er sterk krydduð salami. Piccante þýðir einfaldlega sterk-kryddað á ítölsku. Þessi vara, sem er framleidd úr hágæða hráefni, er krydduð með sterku chilli. Salami Piccante er einnig mjög vinsæl á veislu- og partýborðið og hentar sérstaklega vel í pastasósur.
-
Rauðvíns Salami
Grunntónar Rauðvínssalami-Tommasi eru rauðvín og hvítlaukur. Ásamt því höfum við bætt við nokkrum vel völdum kryddtegundum sem gefa pylsunni einstakt bragð. Líkt og með allar kjötvörur okkar er Rauðvínssalami–Tommasi þurrverkuð með hefðbundinni ítalskri aðferð. Þannig næst fram fullkomin áferð og bragð án allra aukaefna og ofnæmisvalda. Ítalskt handverk eins og það gerist best.
-
Salamino
Salamino eða cacciatore, er lítil salami sem dregur nafn sitt af cacciatore sem þýðir veiðimaður og hentaði vel fyrir veiðimenn sem skelltu yfir öxlina lengju af salamino (margar litlar salami pylsur) og héldu af stað í veiðiferð. Þessi tegund er mildkrydduð og ljúffeng, hentar sérstaklega vel í snarl, sem lystauki, í veiði og hestaferðir, með brauði, með víni og með bjór, jafnvel bara ein og sér.
-
Salsiccia
Salciccia sem þýðir einfaldlega pylsa á ítölsku er hrápylsa sem er frábært að grilla, nota í pastasósur eða sem álegg á pizzur. Pylsurnar koma í tveimur bragðtegundum, "Piccante" sem er bragðsterk og "Krydduð Salciccia" sem er mild en bragðmikil. Salciccia frá Tariello er handgerð kjötvara án allra aukaefna sem inniheldur aðeins kjöt, krydd og salt. Salciccia er frystivara sem tekur aðeins stuttan tíma að afþýða.
-
Tariello Pasta
Pasta sem kemur frá litlu fjöldskyldufyrirtæki á suður Ítalíu. Pastað er að hluta til handgert og er gert úr hágæða semolino hveiti og vatni. Pastað fer í gegnum langt og hægt þurrkunarferli til að bæta enn frekar gæði þess. Eiginleikar semolino hveitisins bætir þéttleikann í pastanu og er það talið betra fyrir meltinguna. Vörur sem í boði eru: Linguini, Spaghetti, Tagliatelle, Tagliolini, Strozzapreti, Trofie Genovesi, Orechette, Mezze Pachecci og Penne Fást í: Melabúðin, Frú Lauga, Búrið, Hagkaup.